Síldin sem veiðist austur af landinu er stór og fallleg. Ljósm. Smári Geirsson

Vinnsla á síld hefur verið samfelld í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað að undanförnu. Beitir NK kom með 1.000 tonn á miðvikudagskvöld og lauk vinnslu á aflanum úr honum á föstudagsmorgun. Þá var Börkur NK kominn að landi með 1.300 tonn og þegar vinnslu á þeim afla lauk var Beitir kominn á ný með 1.560 tonn sem byrjað var að vinna í nótt.

Hálfdan Hálfdanarson, skipstjóri á Berki, segir að síldveiðarnar gangi afar vel. “Þetta getur vart verið betra. Veiðin fer að mestu fram á Héraðsflóanum og í síðasta túr vorum við utarlega í honum. Þetta er alltaf sama fína síldin. Meirihluti síldarinnar er norsk – íslensk en breytilegt er hve hátt hlutfall íslenskrar sumargotssíldar er í aflanum. Við fengum þessi 1.300 tonn í síðasta túr í fjórum holum og vorum rétt rúmlega sólarhring að veiðum,” sagði Hálfdan.

Ólafur Gunnar Guðnason, skipstjóri á Beiti, var einnig ánægður með gang veiðanna. ”Við komum inn síðdegis í gær eftir stutta veiðiferð. Aflinn fékkst í þremur holum í Syðri holunni á Héraðsflóanum. Það voru ein fimm skip að veiða á sama blettinum og þau fengu öll góðan afla. Síldin er stór og falleg og ekki undan neinu að kvarta,” sagði Ólafur Gunnar.