Fjölnir GK hefur að undanförnu róið frá Þorlákshöfn. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Krókaaflamarksbáturinn Fjölnir GK hefur róið frá Þorlákshöfn að undanförnu og eru þeir Fjölnismenn ágætlega sáttir við árangurinn. Heimasíðan sló á þráðinn til Júlíusar Magnúsar Sigurðssonar skipstjóra og fékk fréttir af gangi veiðanna. “Þetta hefur bara gengið vel að undanförnu. Við höfum getað róið flesta daga og höfum gjarnan verið með um 10 tonn í róðri. Segja má að vertíðarveiðin sé að hefjast – það er einhver þorskur mættur á miðin hér og einnig ýsa. Þorskurinn er afar vænn og meðalvigtin á honum er í á bilinu 8 -10 kg. Fjölnir hefur veitt um 100 tonn frá áramótum og er um helmingur aflans þorskur og hinn helmingurinn er ýsa og langa. Við höfum róið frá Þorlákshöfn upp á síðkastið en áður rerum við frá Grindavík og Sandgerði. Hér hefur verið fimbulkuldi og rok en sjór hefur hins vegar verið sléttur því við höfum lagt línuna nálægt landi í góðu skjóli. Nú er veður hins vegar að breytast og ég geri ráð fyrir að við færum okkur til Sandgerðis jafnvel á morgun. Það má alveg segja að við séum ágætlega sáttir við árangurinn að undanförnu. Janúar hefur bara verið góður til þessa og seinni partur desembermánaðar var einnig fínn,” sagði Júlíus Magnús.