
Í dag er öskudagur og hver krakkahópurinn á fætur öðrum hefur komið í heimsókn á skrifstofur Síldarvinnslunnar og sungið fyrir starfsfólkið. Gjarnan eru krakkarnir klæddir í skrautlega búninga og söngurinn virðist vera þaulæfður. Kennarar og starfsfólk Nesskóla fylgja hópunum og allir eru glaðir og brosandi út að eyrum. Fyrir heimsóknina og sönginn þiggur unga fólkið harðfisk af bestu gerð enda þykir tilhlýðilegt að sjávarútvegsfyrirtæki þakki fyrir sig með sælgæti úr hafinu.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem teknar voru af syngjandi krakkahópum sem heimsóttu skrifstofur Síldarvinnslunnar í dag.


