Blængur NK landaði í heimahöfn í Neskaupstað í gær. Ljósm. Guðlaugur Björn Birgisson

Frystitogarinn Blængur NK landaði 443 tonnum í heimahöfn í Neskaupstað í gær. Hann er síðasta Síldarvinnsluskipið sem kemur til hafnar nú fyrir jólin. Verðmæti aflans er 376 milljónir króna. Heimasíðan ræddi við Sigurð Hörð Kristjánsson og spurði um veiðiferðina. ”Það var afar rólegt fiskiríið í þessum túr og megnið af tímanum var veðrið heldur leiðinlegt. Við vorum allan túrinn á Austfjarðamiðum vegna tíðarfarsins og þar var reyndar megnið af togaraflotanum. Veiðin var dræm og við vorum allan túrinn að leita að ýsu með heldur takmörkuðum árangri. Í sannleika sagt var þetta skraptúr eða bölvað hark en auðvitað voru allir að reyna að gera sitt besta. Meginhluti aflans var þorskur og ýsa. Nú er jólafrí framundan og við óskum öllum gleðilegra jóla. Ráðgert er að skipið haldi til veiða á ný þann 2. janúar. Hér um borð eru menn bjartsýnir fyrir næsta ár. Það þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn,” sagði Sigurður Hörður.