
Börkur NK kom til Neskaupstaðar í nótt með fullfermi eða 3.200 tonn af kolmunna úr færeysku lögsögunni. Heimasíðan ræddi við Hálfdan Hálfdanarson skipstjóra og spurði fyrst hvernig veiðin hefði gengið. ”Það var ágætis kropp. Við vorum að veiðum austnorðaustur af Færeyjum og aflinn fékkst í átta holum. Það fengust á milli 250 og 600 tonn í holi og það var dregið í 10 – 17 tíma. Þetta er fínasti fiskur sem þarna er á ferðinni. Það voru ekki mörg íslensk skip á miðunum. Þarna voru Síldarvinnsluskipin og Hákon. Færeysk, norsk og rússnesk skip voru nokkur og svo var grænlenska skipið Polar Amaroq þarna. Það er rúmur mánuður síðan þessi vertíð í færeysku lögsögunni hófst og hún hefur gengið býsna vel. Það hefur bæði verið gott veður og góð veiði. Það verður búið að landa úr skipinu í kvöld og þá er næst á dagskrá að þrífa og gera klárt fyrir næsta úthald sem er makrílúthaldið. Kolmunnaveiðum hjá okkur er semsagt lokið í bili. Ég held að menn geri ráð fyrir að haldið verði til makrílveiða einhvern tímann eftir miðjan júní,” sagði Hálfdan.
Barði og Beitir eru að kolmunnaveiðum í færeysku lögsögunni.