
Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson
Þessa dagana eru Vísisskipin að koma með síðustu farmana fyrir jólin til vinnslu í Grindavík. Gert er ráð fyrir að síðasti vinnudagur í frystihúsi og salthúsi Vísis verði á laugardag. Ísfisktogarinn Jóhanna Gísladóttir GK kom til löndunar á miðvikudaginn og verið er að landa úr línuskipinu Páli Jónssyni GK. Heimasíðan ræddi stuttlega við skipstjórana.
Einar Ólafur Ágústsson, skipstjóri á Jóhönnu Gísladóttur, sagði að veitt hefði verið fyrir austan land. ”Aflinn var rúm 60 tonn og fékkst hann að mestu í Héraðsflóadýpinu og í Seyðisfjarðardýpi. Þetta var fínasti afli og langmest af honum var stór og góður þorskur. Nú fara menn í vel þegið jólafrí en það er ekki ráðgert að halda til veiða á ný fyrr en nýtt ár er gengið í garð,” sagði Einar Ólafur.
Verið er að landa úr Páli Jónssyni í dag og lét Benedikt Jónsson skipstjóri vel af sér. ”Við vorum að veiðum suðaustur af Hvalbaknum og veiðin var mjög góð. Aflinn er 80 tonn og fékkst hann í rúmum tveimur lögnum. Þarna veiðist svakalega fínn þorskur og veiðin fyrir austan að undanförnu hefur verið hin besta og fiskurinn af fínni stærð. Nú er verið að þrífa skipið hátt og lágt þannig að Páll Jónsson verður í sparifötunum um jólin. Við hér um borð erum brattir enda hefur gengið vel. Til þess að vel gangi þarf mannskapurinn að vera góður og útgerðin að vera góð og sem betur fer er hvoru tveggja til staðar hjá okkur. Nú munu allir í áhöfninni halda heim og njóta jólanna,” sagði Benedikt.
Hér skal þess getið að krókaaflamarksbátur Vísis, Fjölnir GK, hefur lítið komist á sjó í mánuðinum vegna óhagstæðs veðurs. Júlíus Magnús Sigurðsson skipstjóri segir að róðrarnir í mánuðinum hafi einungis verið sjö eða átta og þess vegna hafi þeir fengið að róa í dag og hugsanlega einnig á sunnudag. Hann segir að fiskgengd hafi heldur verið að aukast á þeim miðum sem Fjölnir hefur sótt á.