
Línuskipið Sighvatur GK kom til löndunar í heimahöfn í Grindavík í gær. Afli skipsins var 80 tonn, mest þorskur en einnig ýsa, langa og keila. Að þessu sinni veiddi Sighvatur utan við svonefnd keiluhólf en Páll Jónsson GK hefur farið tvær veiðiferðir í keiluhólfin suður af landinu að undanförnu í samvinnu við Hafrannsóknastofnun. Tilgangurinn með veiðum Sighvats er að fá samanburð á þeim fiski sem fæst í hólfunum og þeim fiski sem fæst rétt utan við þau. Eins og fram hefur komið hafa keiluhólfin verið lokuð fyrir veiðum í allt að 25 ár og var tilgangur lokunarinnar að vernda smákeilu sem álitið var mikið af á viðkomandi svæðum. Eins og fram hefur komið fékk Páll Jónsson vænan og góðan fisk í hólfunum í báðum veiðiferðum.
Heimasíðan ræddi við Aðalstein Rúnar Friðþjófsson skipstjóra á Sighvati og spurði hann hvernig veiðiferðin hefði gengið. ”Hún gekk ágætlega. Alls voru lagðar fimm lagnir rétt utan við hólfin og fengum við ávallt góðan og fallegan fisk. Hafrannsóknastofnun fær síðan upplýsingar um aflann og getur borið hann saman við þann afla sem Páll Jónsson fékk inni í hólfunum. Við byrjuðum á að leggja utan við Kötlugrunnshólfið og síðan var lagt bæði vestan og austan við Ingólfshöfðahólfið. Þá var haldið í Breiðamerkurdýpi, Mýragrunn, Hornafjarðardýpi og endað á Stokksnesgrunni. Túrinn tók sex og hálfan sólarhring og gekk vel í alla staði,” sagði Aðalsteinn Rúnar.
Sighvatur hélt á ný til veiða fljótlega eftir að löndun lauk í gær.