
Í gær var boðið upp á sannkallaða síldarveislu í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Er þetta þriðja árið sem boðið er til slíkrar veislu en í henni gefst mönnum kostur á að smakka jólasíld frá mörgum fyrirtækjum auk síldar frá Síldarvinnslunni. Þarna var síld frá Eskju á Eskifirði, Brim, Ósnesi á Djúpavogi, Skinney – Þinganesi á Hornafirði, Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum og Ísfélaginu í Vestmannaeyjum.. Þá var boðið upp á síldarsalöt sem útbúin voru úr Síldarvinnslusíld. Margir starfsmenn Síldarvinnslunnar komu í veisluna og einnig fyrrverandi starfsmenn. Allir brostu út að eyrum og spenningurinn leyndi sér ekki. Það ríkti síldarstemmning en allir vita að slík stemmning er sérstök.
Síldin frá hinum ýmsu framleiðendum var smökkuð og síðan áttu sér stað fjörugar umræður um bragð og gæði. Ekkert fór á milli mála að gestirnir nutu stundarinnar til hins ítrasta en áberandi var að karlmenn voru í miklum meirihluta. Það er engu líkara en karlkynið dái síldina í ríkari mæli en kvenkynið.
Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuversins, segir að það sé eftirtektarvert hve mörg fyrirtæki framleiði jólasíld og ljóst sé að framleiðslunni sé sinnt af miklum metnaði. ”Fólk kann vel að meta jólasíldina og bíður spennt eftir henni á hverju ári. Auðvitað erum við sannfærðir um að Síldarvinnslusíldin sé best og því snerist umræðan í veislunni í ríkum mæli um það hvaða síld væri næstbest,” sagði Geir Sigurpáll.
