
Ljósm. Sigurjón M. Jónuson
Veiði og vinnsla á yfirstandandi síldarvertíð gengur vel. Beitir NK kom til Neskaupstaðar sl. fimmtudag með 1.410 tonn og hóf hann að landa á föstudagsmorgun. Síldin er stór og falleg og er bæði um norsk-íslenska síld og íslenska sumargotssíld að ræða. Tómas Kárason skipstjóri var ánægður með veiðina. ”Við vorum að veiðum í norðurkantinum á Glettinganesflakinu og fengum aflann í þremur holum. Það var togað í tvo til þrjá tíma í hverju holi og fengust um 400 tonn í tveimur þeirra en í síðasta holinu voru 610 tonn. Í túrnum var prófað nýtt þriggja vængja troll frá Hampiðjunni en slík troll eru nú að ryðja sér til rúms. Það má segja að hér um borð séu allir kampakátir,” sagði Tómas.
Börkur NK kom síðan sl. nótt og var afli hans um 1.700 tonn. Vinnsla hófst úr skipinu strax og þrifum á fiskiðjuverinu var lokið en allt var þrifið hátt og lágt eftir að vinnslu á síldinnu úr Beiti lauk. Hjörvar Hjálmarsson skipstjóri var ánægður með veiðiferðina. ”Þetta gekk afar vel. Við fengum aflann við Litlagrunn sem er á miðjum Héraðsflóa. Dregið var frá einum og upp í fjóra tíma og var aflinn frá 130 og upp í 570 tonn í holi. Síldin er blönduð og var hlutfall íslenskrar sumargotssíldar hátt. Í morgun hófst löndun úr skipinu og hún mun taka eina tvo sólarhringa,” sagði Hjörvar.
Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar, segir að vinnsla á síldinni gangi vel. Eins og áður sé stærri síldin heilfryst en sú minni er nýtt til framleiðslu á samflökum. ”Þetta lítur allt saman mjög vel út og hefur gengið eins og best verður á kosið hingað til,” sagði Geir Sigurpáll.