Sævar Steinn Friðriksson og Hafdís Þóra Ragnarsdóttir tilbúin að upplýsa gesti á Starfamessunni um störf hjá Síldarvinnslunni

Starfamessa Austurlands 2026 var haldin í íþróttahúsinu í Neskaupstað í gær. Messuna sóttu um 450 nemendur úr efstu tveimur bekkjum grunnskóla og tveimur fyrstu árgöngum framhaldsskóla á Austurlandi. Starfamessan fór fram í íþróttahúsinu í Neskaupstað.

Starfamessa er haldin á Austurlandi annað hvert ár og annast Austurbrú skipulagningu hennar. Á messunni kynna fyrirtæki og stofnanir starfstækifærin sem þau bjóða upp á og eins eru námsmöguleikar kynntir.

Slæmt veður var í gær og varð það óhapp á Fagradal að rúta á leið á messuna með nemendur frá Egilsstöðum fauk út af veginum en sem betur fer slasaðist enginn.

Síldarvinnslan tók að sjálfsögðu þátt í starfamessunni og önnuðust þau Hafdís Þóra Ragnarsdóttir og Sævar Steinn Friðriksson kynningu á þeim störfum sem fyrirtækið býður upp á en þau eru býsna fjölbreytt. Hafdísi og Sævari Steini þótti messan takast vel. Það kom þeim á óvart hve krakkarnir voru áhugasamir og spurðu mikið. Það virtist koma þeim á óvart hve störfin innan Síldarvinnslunnar væru fjölbreytt og hve unnt væri að fara margar námsleiðir til að undirbúa sig fyrir starf hjá fyrirtækinu. Þá sögðu þau að nóg hefði verið að gera allan tímann við að svara fyrirspurnum og augljóst væri að starfamessan væri hið þarfasta framtak.

Það kom gestum á Starfamessunni á óvart hve störfin hjá Síldarvinnslunni eru fjölbreytt