
Síldarvinnslan hefur fært Veðurstofu Íslands tvo snjómæla að gjöf. Mælarnir eru af gerðinni SM4 og hafa þegar verið settir upp í snjóflóðafarvegum ofan vegarins á milli þéttbýlisins í Neskaupstað og hafnarsvæðisins fyrir botni Norðfjarðar. Stórt flygildi eða dróni í eigu Björgunarsveitarinnar Brimrúnar á Eskifirði var notað til að flytja mælabúnaðinn upp í fjallið en mælarnir voru annars vegar settir upp við svonefndar Bræðslugjár og hins vegar í Miðstrandargili. Gögn frá mælunum munu auðvelda eftirlit og mat á snjóflóðaaðstæðum ofan við veginn. Mælarnar munu með ótvíræðum hætti skapa betri forsendur fyrir ákvarðanatökur sem varða fólk sem fer um veginn yfir vetrartímann en veruleg umferð er á milli þéttbýlisins og hafnarsvæðisins. Hér er því um mikilvæga aðgerð að ræða sem eykur öryggi.

Síldarvinnslan festi kaup á umræddum mælum og afhenti Veðurstofunni þá til uppsetningar og rekstrar. Það eru starfsmenn Veðurstofunnar í Neskaupstað, þeir Hlynur Sveinsson og Daði Benediktsson, sem hafa haft umsjón með uppsetningu mælanna og hafa þeir fengið góða aðstoð frá félögum í Björgunarsveitinni Brimrúnu við það verkefni.
SM4 mælarnir hafa reynst vel og virka eins og til er ætlast við erfiðar veðuraðstæður. Mælarnir eru hannaðir og smíðaðir af fyrirtækinu POLS á Ísafirði með þarfir snjóflóðavöktunar í huga. Veðurstofan og Vegagerðin eiga og reka saman um 40 slíka mæla á landinu.