Síldarvinnslan er á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki í ár eins og hún hefur verið öll ár frá 2012. Um 2% íslenskra fyrirtækja teljast til framúrskarandi fyrirtækja samkvæmt mati Creditinfo og er Síldarvinnslan þar í flokki stórra fyrirtækja. Einnig eru Vísir ehf., Bergur – Huginn ehf. og Laxá hf. í hópi framúrskarandi fyrirtækja en þau eru öll hluti af Síldarvinnslusamstæðunni.

Þegar fer fram mat á því hvort fyrirtæki er framúrskarandi er meðal annars horft til þess hvort ársreikningi hafi verið skilað á réttum tíma og hvort fyrirtækið fer að lögum í starfsemi sinni. Þá er horft til ýmissa þátta eins og skuldastöðu, eiginfjárhlutfalls, rekstrarafkomu, eigna og tengsla við nærumhverfi. Segja má að það sem helst einkennir framúrskarandi fyrirtæki sé stöðugleiki, sterkur grunnur og efnahagslegt mikilvægi.

Gunnþór B. Ingvason forstjóri Síldarvinnslunnar er ánægður með að umrædd fyrirtæki skuli öll vera á lista yfir framúrskarandi fyrirtæki. “Það er svo sannarlega heiður fyrir þessi fyrirtæki að vera á þessum lista yfir framúrskarandi fyrirtæki. Að sjálfsögðu eiga fyrirtæki að tileinka sér þau gildi sem liggja til grundvallar því að komast á listann. Það er hins vegar ekki sjálfgefið og til þess að ná þeim árangri þarf fyrirtæki að eiga öflugt teymi á öllum vígstöðvum. Stefnuföst og samhent stjórn þarf að vera til staðar ásamt öflugu starfsfólki,” sagði Gunnþór.