
Síldarvinnslan er um þessar mundir að gera breytingar á sviði útgerðar ísfisktogara fyrirtækisins. Útgerð togaranna Gullvers NS og Jóhönnu Gísladóttur GK verður hætt en þess í stað hafin útgerð togarans Birtings NK.
Gullver NS landaði 110 tonnum í Hafnarfirði í gær og lauk þar með síðustu veiðiferð skipsins í eigu Síldarvinnslunnar. Gullver hefur verið auglýstur til sölu. Jóhanna Gísladóttir GK mun síðan ljúka veiðum á vegum Síldarvinnslusamstæðunnar um komandi mánaðamót og verður þá einnig sett á söluskrá.
Gullver NS var smíðaður í Flekkefjord í Noregi og lauk smíði hans sumarið 1983. Það var Gullberg hf. á Seyðisfirði sem festi kaup á skipinu og var því gefið nafnið Gullver og bar einkennisstafina NS 12. Skipið kom nýtt til Seyðisfjarðar þann 12. júlí 1983.

Árið 2014 festi Síldarvinnslan kaup á Gullbergi og þar með skuttogara félagsins. Um áramótin 2016 – 2017 var Gullberg sameinað Síldarvinnslunni og hélt Síldarvinnslan áfram að gera Gullver út frá Seyðisfirði.
Gullver er 674 tonn að stærð með 1770 hestafla vél og hefur alla tíð reynst vel. Það er hins vegar með skip eins og annað að tíminn fer um þau óblíðum höndum og að því kemur að þau uppfylla ekki þær kröfur sem gerðar eru. Nú hefur Gullver lokið sínu hlutverki í austfirska togaraflotanum og óljóst hver framtíð skipsins verður.