
Síldarvinnslan í Neskaupstað hefur tekið ákvörðun um að leggja tveimur skipum í flota samstæðunnar. Ákvörðunin er hluti hagræðingaraðgerða til að bregðast við samdrætti aflaheimilda, áhrifum af hækkun á kostnaðarliðum og breytingum á rekstrarumhverfi sjávarútvegsfyrirtækja.
Auk þess að hætta útgerð ísfisktogarans Gullvers NS 12 hefur Síldarvinnslan einnig ákveðið að hætta útgerð ísfisktogarans Jóhönnu Gísladóttur GK 357 sem gerður hefur verið út af Vísi ehf. í Grindavík. Skipin eru 42 og 27 ára gömul, smíðuð 1983 og 1998.
Ákvörðunin er áfangi í endurskipulagningu á starfsemi samstæðunnar sem nauðsynlegt var að grípa til. Uppsögn tveggja áhafna nær til 40 sjómanna. Gert er ráð fyrir að hluti þeirra fái pláss á ísfisktogaranum Birtingi NK og öðrum skipum samstæðunnar. Birtingur NK verður skipaður tvöfaldri áhöfn. Síldarvinnslan festi kaup á Birtingi NK í lok árs 2024 frá Skinney-Þinganes hf.
Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar hf.:
„Ákvarðanir sem kalla á uppsagnir eru ávallt flóknar og erfiðar, en Síldarvinnslan leggur sig fram um að milda áhrif aðgerðanna eftir fremsta megni. Þær eru hins vegar nauðsynlegar til að tryggja og viðhalda samkeppnishæfni félagsins og starfsemi til framtíðar. Rekstrarumhverfi hefur verið að breytast, útlit fyrir frekari samdrátt aflaheimilda. Við erum að leggja skipum sem komin eru til ára sinna.“
Sjómennirnir njóta sex mánaða uppsagnarfrests og verða bæði skip gerð út þann tíma þar til Birtingur er tilbúinn til útgerðar. Þá verða þrjú uppsjávarskip gerð út af Síldarvinnslunni og þrír ísfisktogarar, tvö línuskip, frystitogari og bátur í krókaflamarki.
Frekari upplýsingar veitir:
Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar
sími: 470-7000