Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar og Friðrik Friðriksson, stjórnarformaður Afls og Orku ehf., við undirritun samstarfssamningsins

Síldarvinnslan hf. og Afl og Orka hf. hafa undirritað samstarfssamning um undirbúning og uppbyggingu lítillar vatnsaflsvirkjunar í Fannardal. Fyrsti áfanginn er að fara í grunnrannsóknir á virkjunarkostinum. Vonir standa til að virkjunin verði með uppsett afl allt að 6 MW og framleiði endurnýjanlega orku inn á dreifikerfið þegar hún verður komin í rekstur.

Síldarvinnslan hf. festi kaup á jörðinni Fannardal á árinu 2022. Fjórar ár eru í Fannardalslandi og eru þær vatnsmiklar.

Verkefnið er liður í orkuskiptum Síldarvinnslunnar og miðar að því að styrkja aðgengi félagsins að endurnýjanlegri og umhverfisvænni orku til framtíðar. Síldarvinnslan hefur á undanförnum árum lagt aukna áherslu á sjálfbærni, ábyrgan rekstur og markviss skref í átt að minna kolefnisspori.

Afl og Orka var stofnað árið 2024 og sérhæfir sig í uppbyggingu og rekstri lítilla vatnsaflsvirkjana víða um land. Félagið er í jafnri eigu HS Orku og Rafal og leggur ríka áherslu á samfélagslega ábyrgð, vandaðan undirbúning framkvæmda og góða umgengni um náttúru og menningarleg verðmæti.

„Þessi samningur er mikilvægt skref í orkuskiptum Síldarvinnslunnar og fellur vel að þeirri stefnu okkar að byggja upp traustan og ábyrgan rekstur til framtíðar. Aðgengi að endurnýjanlegri orku skiptir sífellt meira máli fyrir íslenskan sjávarútveg, bæði út frá umhverfissjónarmiðum og rekstraröryggi. Við sjáum í þessu verkefni tækifæri til að styrkja innviði okkar með ábyrgum hætti, í góðu samstarfi við aðila sem leggja áherslu á fagmennsku og virðingu fyrir umhverfi og samfélagi. Við teljum mikilvægt að við Íslendingar nýtum þá kosti sem við eigum til að afla okkur endurnýjanlegrar grænnar orku,“ segir Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar.

Aðilar munu á næstunni hefja rannsóknir og undirbúning verkefnisins, nánari útfærslu og í kjölfarið verður farið í að afla nauðsynlegra leyfisveitinga í samræmi við lög og reglur. Allt að þrjú ár geta liðið þar til niðurstöður um ákvörðun um að fara í næsta áfanga liggja endanlega fyrir.