
Í gær var Síldarvinnslunni veitt umhverfisviðurkenning Fjarðabyggðar fyrir minningareit fyrirtækisins. Minningareiturinn var vígður 25. ágúst 2022 og er hann á grunni gömlu fiskimjölsverksmiðjunnar sem eyðilagðist í snjóflóði 20. desember 1974.
Í tilefni 60 ára afmælis Síldarvinnslunnar árið 2017 var ákveðið að láta gera minningareit sem helgaður yrði sögu fyrirtækisins og þeim sem látist hafa í störfum hjá því. Reitnum var valinn staður á grunni gömlu fiskimjölsverksmiðjunnar en þar stóð gamall gufuketill úr verksmiðjunni sem gert var ráð fyrir að yrði hluti reitsins. Efnt var til samkeppni um gerð reitsins árið 2018 og bárust átta tillögur sem sérstök nefnd yfirfór og mat. Tillaga Kristjáns Breiðfjörð Svavarssonar bar sigur úr býtum en tillaga Ólafíu Zoëga hlaut einnig verðlaun en hún gerði ráð fyrir að reiturinn myndi tengjast svæðinu neðan við grunninn og þar yrði gerð bryggja.
Unnið var að gerð reitsins sumarið 2022 og hafði Geir Sigurpáll Hlöðversson umsjón með því verki. Stefnt var að því að minningareiturinn yrði fallegur og friðsæll staður sem fólk myndi njóta að heimsækja og minnast þeirra sem farist höfðu í störfum hjá fyrirtækinu. Það er eindregin skoðun fólks að gerð minningareitsins hafi heppnast vel í alla staði og hefur verið kappkostað að hugsa vel um hann og allt umhverfi hans.

Það var Þuríður Lillý Sigurðardóttir forseti bæjarstjórnar og formaður skipulags- og framkvæmdanefndar Fjarðabyggðar sem afhenti umhverfisviðurkenninguna og ræddi hún þá sérstaklega um minningareitinn og hve vel heppnaður hann væri. Þá vakti hún athygli á því að öll umhverfismál hjá Síldarvinnslunni væru til mikillar fyrirmyndar og ætti það að vera öðrum fyrirtækjum hvatning til að hugsa vel um umhverfi sitt.
Rétt er að geta þess hér að á hverju sumri starfar umhverfishópur undir stjórn Eiríks Karls Bergssonar hjá Síldarvinnslunni. Í hópnum eru ungmenni sem hafa það hlutverk að hugsa vel um lóðir fyrirtækisins og tryggja að hús og önnur mannvirki í þess eigu líti vel út. Störf þessa hóps hafa svo sannarlega skilað miklum og góðum árangri og ljóst er að þau eru mikils metin.