Samheldni er átakssjóður með það að markmiði að sameina íslenskt atvinnulíf í öflugu átaki til stuðnings fólki sem á við fíknisjúkdóma að stríða og aðstandendum þeirra. Sjóðnum er ætlað að styðja verkefni sem bæta og styrkja meðferðarúrræði þannig að líkur aukist á því að þeir sem eiga í vanda eigi möguleika á betra lífi.

Stjórn Síldarvinnslunnar hefur tekið ákvörðun um að styrkja Samheldni næstu fimm árin og leggja þannig sitt lóð á vogarskálina til þess að markmið átakssjóðsins náist og störf hans skili góðum árangri.

Staðreyndin er sú að fíknisjúkdómar snerta okkur öll og mikilvægt er að hefja baráttuna gegn þeim af meiri ákveðni en áður. Hið opinbera stendur straum af rekstrarkostnaði við meðferðarúrræði en innviðafjárfestingar meðferðarstofnana- og samtaka byggja á styrkjum. Samheldni hefur þegar ákveðið að styðja þrjú mikilvæg verkefni. Í fyrsta lagi verður SÁÁ styrkt til að auka aðstoð við fjölskyldur fólks með fíknisjúkdóma. Í öðru lagi verður uppbygging smáhýsa á vegum Hlaðgerðarkots styrkt, en smáhýsin verða nýtt til tímabundinnar búsetu fólks sem er að koma úr meðferð. Í þriðja lagi verður síðan veittur stuðningur við byggingu nýrrar álmu í Krýsuvík en með tilkomu hennar mun meðferðarrýmum fjölga þar um 20.

Síldarvinnslan telur sjálfsagt að leggja sitt af mörkum til þessa góða málefnis en fyrir liggur að mörg fyrirtæki munu taka þátt í því.