
Um hádegisbil í gær kom Börkur NK til Neskaupstaðar með 1.900 tonn af loðnu. Löndun hófst strax. Í kjölfar Barkar kom grænlenska skipið Polar Amaroq með 2.000 tonn og Beitir NK með 2.200 tonn. Grænlenska skipið Polar Ammassak er síðan á leið af miðunum til Neskaupstaðar með 2.100 tonn. Loðnan sem skipin koma með að landi er hrognaloðna og gengur hrognavinnsla vel í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Síldarvinnsluskipin Barði, Beitir og Börkur hafa nú lokið veiðum á loðnuvertíðinni.
Heimasíðan ræddi við skipstjórana á Berki og Beiti og spurði þá um síðustu veiðiferðina á vertíðinni og hvað einkennt hefði þessa vertíð. Hjörvar Hjálmarsson, skipstjóri á Berki, var hinn ánægðasti með gang vertíðarinnar. ”Það er ekki hægt að segja annað en að vertíðin hafi verið góð. Loðnan kom í nokkrum gusum sína hefðbundnu gönguleið og svo kom vestanganga að auki. Menn urðu varir við loðnu víða og það er ljóst að umtalsvert magn er að fara að hrygna og það veit á gott. Í þessum síðasta túr vertíðarinnar vorum við að veiðum um sjö mílur suður af Malarrifi. Þar var mikill fjöldi skipa og veiðin góð. Þarna var veitt úr mikilli torfu sem kom örugglega að vestan. Hrogn úr vestangönguloðnu eru öðruvísi á litinn en úr annarri loðnu. Þau eru meira appelsínugul. Það fæst örugglega mikið af hrognum úr þessari loðnu sem við erum með nú og hrygnuhlutfall í farminum er hátt eða frá 55 – 70%. Að lokinni löndun er næst á dagskránni hjá okkur að þrífa skipið og gera klárt fyrir kolmunnaveiðar,” sagði Hjörvar.
Tómas Kárason, skipstjóri á Beiti , var einnig ánægður með vertíðina. ”Þetta var snörp og góð loðnuvertíð. Það gekk vel að veiða og veður var tiltölulega hagstætt. Ég held að menn geti ekki verið annað en ánægðir með vertíðina. Í þessum túr vorum við eins og aðrir að veiða suður af Malarrifi. Aflann fengum við í fimm köstum og fengust frá 100 og upp í 600 tonn í kasti. Það var býsna þröngt á miðunum þarna en góð stemmning. Það er fullt af hrognum í þessari loðnu sem við erum með og meirihluti aflans er hrygna. Það bendir því allt til þess að kraftmikil hrognavinnsla haldi áfram í fiskiðjuverinu. Ég geri ráð fyrir að löndun úr Beiti hefjist í kvöld,” sagði Tómas.