
Beitir NK kom með 800 tonn af síld til Neskaupstaðar í gærkvöldi. Vinnsla hófst þegar úr skipinu í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar og er gert ráð fyrir að henni ljúki í kvöld. Beitir mun væntanlega halda strax til veiða á ný að löndun lokinni. Heimasíðan ræddi við Ólaf Gunnar Guðnason skipstjóra og spurði hvernig túrinn hefði gengið. ”Þessi túr var svipaður öðrum á vertíðinni. Það fæst eitt og eitt gott hol en svo er lítið þess á milli. Síldin hefur verið mjög brellin. Það er ýmist góð veiði og allt í blóma en síðan lítið þess á milli. Hún hleypur fram og til baka, hverfur og birtist. Í þessum túr voru tekin fjögur hol. Við byrjuðum í Bakkaflóadýpinu og fengum 450 tonn í fyrsta holi. Síðan datt botninn úr þessu og við fengum minna í næstu holum og það var endað í Vopnafjarðardýpinu. Það var líflegt og talsvert að sjá í byrjun en síðan lagðist síldin á botninn og þar náum við henni ekki. Þannig er síldveiðin brösótt um þessar mundir en inn á milli er góð veiði og allir hressir. Hlutfall íslenskrar sumargotssíldar í aflanum virðist fara vaxandi og í þessum túr var það í kringum 40%”, sagði Ólafur Gunnar.