Auk þess sem síld er heilfryst eru framleidd samflök og flök í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Ljósm. Geir Sigurpáll Hlöðversson

Beitir NK kom með 1.000 tonn af síld til Neskaupstaðar á miðvikudaginn. Heimasíðan ræddi stuttlega við Ólaf Gunnar Guðnason skipstjóra og spurði um veiðiferðina. ”Við vorum að veiða í Norðfjarðardýpi, Reyðarfjarðardýpi og á Glettinganesflaki. Megnið af túrnum var leiðindabræla. Það má ekki toga fyrir innan 12 mílurnar og síldin virðist færa sig seint frá landinu. Við sáum ekkert sérstaklega mikið á veiðisvæðinu en það eru hins vegar fallegustu torfur fyrir innan 12 mílurnar. Aflann fengum við í fimm holum og fengust frá 100 og upp í 300 tonn í holi. Það virðist vera meira af íslenskri vorgotssíld í aflanum því sunnar sem veitt er. Núna var til dæmis hæst hlutfall af þeirri síld þegar veitt var í Reyðarfjarðardýpinu,” sagði Ólafur Gunnar.

Lokið var við að vinna aflann úr Beiti sídegis í gær og hófst þá vinnsla úr Berki NK sem kominn var með 840 tonn. Lokið verður við að vinna úr Berki síðdegis í dag og þá verður fiskiðjuverið þrifið og starfsfólkið fær helgarfrí. Að sögn Geirs Sigurpáls Hlöðverssonar rekstrarstjóra fiskiðjuversins gengur vinnslan vel. Síldin er heilfryst og einnig framleidd samflök og flök. Nú er til dæmis hluti framleiðslunnar roðlaus flök.