
Í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað er síld unnin af krafti þessa dagana. Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuversins, segir að um sé að ræða góða síld sem henti mjög vel til vinnslu. Segir hann einnig að um 70% af síldinni sé norsk-íslensk síld og um 30% íslensk sumargotssíld. Þá upplýsir hann að stærri síldin sé heilfryst en framleidd samflök úr minni síldinni. Íslenska sumargotssíldin er minni og magurri en norsk-íslenska síldin.
Barði NK kom með 920 tonn af síld á laugardagsmorguninn og segir Theodór Haraldsson skipstjóri að um eðalsíld sé að ræða. ”Við fengum aflann í þremur holum og það var stutt dregið eða frá einum og hálfum tíma og upp í þrjá. Veitt var úti á Glettinganesflaki og í Seyðisfjarðardýpi í blíðuveðri. Það var mikið af síld að sjá á þessum slóðum. Það stendur til að Barði haldi næst til kolmunnaveiða,” sagði Theodór.
Beitir NK kom síðan með 600 tonn í gærmorgun og var veitt á sömu slóðum og Barði veiddi á. Fékk Beitir aflann í fjórum holum. Vinnslu á afla Beitis lauk í nótt og hélt hann til áframhaldandi síldveiða í morgun.
Í morgun kom Börkur NK til löndunar með 1.400 tonn. Hjörvar Hjálmarsson skipstjóri var ánægður með túrinn. ”Þetta gekk vel. Við fengum aflann í fjórum holum og það var misjafnt hvað fékkst í hverju þeirra. Í fyrsta holinu voru einungis 40 tonn en síðan voru þetta 200, 460 og 700 tonn. Það var dregið frá einum og hálfum og upp í þrjá tíma. Það er mikil ferð á síldinni og stundum hverfur hún en svo blossar hún upp á ný. Á meðan við vorum að veiðum gekk hún fyrst í vestur og síðan í suður. Það er töluvert hátt hlutfall af íslenskri sumargotssíld í aflanum og það er ánægjulegt að hún sýni sig í auknum mæli hér fyrir austan landið,” sagði Hjörvar.