Barði NK kom með síðasta síldarfarm ársins í gærmorgun. Ljósm. Smári Geirsson

Barði NK kom til Neskaupstaðar í gærmorgun með síðasta síldarfarm ársins. Aflinn var 760 tonn og fékkst hann vestur af landinu. Heimasíðan ræddi stuttlega við Þorkel Pétursson skipstjóra og spurði hann hvernig þessi lokatúr vertíðarinnar hefði gengið. Þorkell sagði að ekki væri unnt að kvarta undan neinu nema veðrinu. ”Við fengum aflann í fjórum holum í Kolluálnum. Aflinn í holi var frá 40 tonnum og upp í 380 tonn. Veðrið var fínt fyrstu 30 tímana á miðunum en síðan skall á kolvitlaust veður með átta metra ölduhæð. Það var ekkert annað að gera en að leita vars og við fórum í var undan Malarrifi. Veðrið þýddi frátafir fyrir okkur í eina 36 tíma. Að óveðrinu loknu fundum við ágætis peðrur og tókum eitt fjögurra og hálfs tíma hol sem gaf 380 tonn. Á landleiðinni héldum við okkur sem næst fjörunni til að fá skjól af landinu því það blés hressilega og var leiðindaveður. Nú er síldarvertíðinni lokið og það er ekki hægt annað en að vera sáttur við hana. Það gekk almennt vel að veiða en stundum þurfti að leita töluvert. Veður var líka gott á vertíðinni þar til undir lokin,” sagði Þorkell.