
Síldarvinnslan kom Sjávarútvegsskólanum á fót árið 2013 og hóf hann þá starfsemi undir heitinu Sjávarútvegsskóli Síldarvinnslunnar. Skólinn var ætlaður nemendum sem höfðu lokið 8. bekk grunnskóla og var hann starfræktur í samvinnu við Vinnuskóla Fjarðabyggðar. Tilkoma skólans vakti athygli og gekk skólahaldið vel í alla staði. Fljótlega vildu fleiri sjávarútvegsfyrirtæki bjóða upp á slíka fræðslu og sveitarfélög reyndust tilbúin til að styðja hana með svipuðum hætti og Fjarðabyggð hafði gert. Í takti við útbreiðslu starfseminnar tók nafn skólans breytingum. Þegar á árinu 2014 nefndist skólinn Sjávarútvegsskóli Fjarðabyggðar og árið eftir nefndist hann Sjávarútvegsskóli Austurlands. Háskólinn á Akureyri hóf að annast skólahaldið árið 2016 og í kjölfar þess var boðið upp á námið allvíða á landinu. Það má því segja að frumkvæði Síldarvinnslunnar árið 2013 hafi borið ríkulegan ávöxt.
Kennsla í Sjávarútvegsskólanum fór fram í Neskaupstað í síðustu viku og í þessari viku er kennt á Eskifirði. Þetta árið eru það Guðrún Arndís Jónsdóttir fyrrverandi forstöðumaður sjávarútvegsmiðstöðvar Háskólans á Akureyri og María Marta Bjarkadóttir sjávarútvegsfræðingur hjá Eskju sem annast kennsluna eystra. Heimasíðan ræddi stuttlega við Guðrúnu Arndísi og bað hana um að greina frá starfseminni í ár. ”Það er ekki kennt jafn víða í ár og hefur verið kennt undanfarin ár. Á Austfjörðum er kennt í Neskaupstað á Eskifirði og á Fáskrúðsfirði og síðan verður kennt fyrir norðan en um kennsluna í Reykjavík sér Fisktækniskólinn. Eins og áður er kennslan framkvæmd í góðri samvinnu við sjávarútvegsfyrirtækin á viðkomandi stöðum og fyrirtæki sem tengjast sjávarútvegi. Auk Sjávarútvegsskólans hefur einnig verið starfræktur Fiskeldisskóli nú hin síðari ár. Upplýsingar um Sjávarútvegsskólann og Fiskeldisskólann náðu til Noregs, Svíþjóðar og Finnlands og hefur verið veittur myndarlegur Erasmus-styrkur til að efla starfsemina. Að þessu sinni voru 11 nemendur útskrifaðir í Neskaupstað. Eins og venjulega var efnt til kynningar á starfsemi á vettvangi auk hefðbundinnar kennslu. Í Neskaupstað var farið í kynningu í Fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar, í uppsjávarveiðiskipið Börk NK og í Hampiðjuna. Alls staðar var tekið frábærlega vel á móti okkur og heimsóknirnar fróðlegar í alla staði. Almennt hefur allt gengið vel og það er gott að starfa með krökkunum. Að mínu mati skiptir fræðsla af þessu tagi miklu máli,” sagði Guðrún Arndís.
