
Ný menningar- og ljóðahátíð var haldin á Austurlandi í maímánuði. Bar hún nafnið Skáldaþing og er fyrirhugað að hún verði haldin árlega í framtíðinni. Fyrirmynd hátíðarinnar er sótt til Suðurnesja en þar hefur samsvarandi hátíð verið haldin þrjú síðastliðin ár. Skáldaþing naut styrks frá Síldarvinnslunni en það var Katla Rut Pétursdóttir fjöllistamaður á Seyðisfirði sem átti hugmyndina að því að efna til slíkrar hátíðar hér eystra og stýrði hún henni. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Kötlu Rut og bað hana fyrst að greina frá dagskrá hátíðarinnar. “Á dagskránni voru fjölbreyttir viðburðir, sumir lágstemmdir en aðrir stærri. Hátíðin var vel sótt og margt listafólk kom fram á henni. Meðal viðburða voru listaopnanir í galleríum, ljóðaupplestur í sundlaugum og búningsklefum, ljóð inn um bréfalúgur og útilistasýning þar sem grunnteikningar húsa voru paraðar saman við frumsamin ljóð. Á Vestdalseyri við Seyðisfjörð voru ljóð eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur til sýnis og nefna má að efnt var til ljóðagöngu í Hallormsstaðaskógi sem lauk með ketilkaffi og smákökum. Ljóðagjörningur við harmonikkuundirleik fór fram í skúlptúrnum Tvísöng á Seyðisfirði þar sem Ragnheiður Harpa skáldkona flutti ljóð úr væntanlegri ljóðabók og frumsamin ljóð eftir 12 nemendur Seyðisfjarðarskóla voru til sýnis í Skaftfelli Bistro ásamt myndskreytingum þeirra. Hátíðin fór fram á Seyðisfirði, Egilsstöðum og Hallormsstað en þátttakendur komu víða að, til dæmis tóku skáld frá Fjarðabyggð þátt i´henni. Þetta fyrsta Skáldaþing tókst afar vel og ég geri mér vonir um að í framtíðinni verði þetta fjórðungshátíð. Ég er afar þakklát fyrir þann stuðning sem við fengum til að halda hátíðina og eins er ég þakklát öllum þeim sem komu fram á henni og unnu að því að gera hana að veruleika,” sagði Katla Rut.
