
Á Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldissýningunni IceFish 2026 hlaut Theodór Elvar Haraldsson skipstjóri á Barða NK verðlaun sem framúrskarandi íslenskur skipstjóri. Verðlaunin voru veitt honum og áhöfn hans fyrir framúrskarandi viðbrögð við alvarlegum háska þegar sprenging varð í vélarrúmi Barða og eldur varð laus þann 12. júní sl. Þegar hættan steðjaði að sýndi áhöfnin snör og fumlaus handtök sem forðuðu því að illa færi.
Sprengingin átti sér stað skammt frá Færeyjum þegar skipið var á leið til heimahafnar í Neskaupstað að lokinni vélarupptekt í Þórshöfn. Barða rak stjórnlaust í rúmar þrjár klukkustundir eftir að eldurinn kom upp en þá kom færeyskt varðskip á vettvang sem dró hann inn til Þórshafnar. Enn er unnið að viðgerð á Barða í Þórshöfn eftir eldsvoðann.
Theodór Elvar lagði á það áherslu eftir sprenginguna og eldsvoðann að þarna hefði sannast hve þjálfun áhafnar á sviði öryggismála væri mikilvæg en áhöfn Barða hefur notað svonefnt Öldu öryggis- og þjálfunarkerfi fyrir fiskiskip.
Ekkert fer á milli mála að Síldarvinnslan getur verið stolt af þeim Barðamönnum og hvernig þeir brugðust við hinni alvarlegu hættu sem upp kom.