Starfsfólk frystihúss Vísis í bolum með mynd af yfirmönnum sínum
Myndin af yfirmönnum frystihúss Vísis sem prentuð var á bolina. Talið frá vinstri: Alli gæðastjóri, Jón Einar verkstjóri, Steinþór verkstjóri og Ómar rekstrarstjóri

Einn góðan veðurdag skömmu fyrir sumarfrí mætti allt starfsfólk frystihúss Vísis í Grindavík úr morgunkaffi klætt bolum með glæsilegri mynd af yfirmönnum sínum. Þetta kom yfirmönnunum skemmtilega á óvart en ekki bar á öðru en þeir væru ánægðir með uppátækið og jafnvel dálítið stoltir. Ómar Enoksson, rekstrarstjóri frystihússins, segist telja að þetta bendi til þess að starfsfólkinu sé ekki sérstaklega illa við stjórnendurna á vinnustaðnum. “Þetta var skemmtilegt framtak hjá starfsfólkinu og auðvitað er þetta fyrst og fremst gert til að hafa gaman,” sagði Ómar.

Vinnsla mun hefjast á morgun í frystihúsi og salthúsi Vísis að afloknu sumarfríi.