Páll Jónsson GK hefur farið tvo túra í svonefnd keiluhólf. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Línuskipið Páll Jónsson GK landaði 116 tonnum á Djúpavogi í gær og var um að ræða afla sem fékkst í svonefndum keiluhólfum suður af landinu. Þetta er annar túrinn sem skipið veiðir í keiluhólfunum en um borð voru tveir starfsmenn Hafrannsóknastofnunar sem fylgdust náið með og mældu og skoðuðu fiskinn sem fékkst. Keiluhólfin hafa verið lokuð fyrir veiðum í allt að 25 ár og þjónaði lokunin fyrst og fremst þeim tilgangi að vernda smákeilu sem álitið var mikið af á viðkomandi svæðum. Jónas Ingi Sigurðsson skipstjóri lét vel af veiðinni í túrnum en afli í fyrri túr skipsins í hólfin var einnig mjög góður. “Við byrjuðum núna í Kötlugrunnshólfi og þar var tekin ein lögn. Fiskurinn sem fékkst var hinn fallegasti en lögnin gaf rúmlega 30 tonn. Þá var haldið í Ingólfshöfðahólf. Þar var einnig um eina lögn að ræða sem gaf 26 tonn. Við enduðum síðan í Sláturhúsinu en það er á Mýragrunni sunnan við Hrollaugseyjar. Þar var um tvær og hálfa lögn að ræða. Fyrsta lögnin gaf 25 tonn, önnur 26 tonn og 15 tonn fengust á hálfu lögninni. Það getur enginn kvartað yfir aflabrögðum eins og þessum. Mikil keila og langa fengust í fyrstu lögnunum en í Sláturhúsinu fékkst meira af ýsu og þorski. Aflinn í túrnum var mjög blandaður; 42 tonn keila, 28 tonn ýsa, 24 tonn þorskur, 18 tonn langa og síðan dálítið af öðru. Ég held að menn séu mjög sáttir við blöndu eins og þessa. Við vorum heppnir með veður nánast allan tímann. Það var þó smákaldi í Sláturhúsinu. Menn eru afar ánægðir með þessa tvo túra í keiluhólfin og þeir sýndu að í hólfunum heldur sig stór og fallegur fiskur,” sagði Jónas Ingi.