Á dekkinu á Bergi VE. Ljósm. Ragnar Waage Pálmason

Ísfisktogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE héldu báðir til veiða frá heimahöfn í Vestmannaeyjum sl. föstudag. Bæði skip lönduðu síðan fullfermi í gær eftir að hafa verið rúman sólarhring að veiðum. Skipstjórarnir láta vel af aflabrögðum en segja að aflinn mætti vera blandaðri en raunin er á. Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, segir að aflinn sé mest ýsa. „Það er allt fullt af ýsu og aflinn er mestmegnis ýsa. Dálítill þorskur kemur þó með. Það er alveg glimrandi veiði og þetta er fallegur fiskur sem fæst. Við vorum að veiðum á Pétursey og Vík en þar höfum við mest verið upp á síðkastið,“ segir Jón.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, tekur undir með Jóni og segir að það sé nánast vandræðalega mikið af ýsu á ferðinni. „Við vorum á Pétursey og Vík og aflinn að mestu ýsa. Aflinn þyrfti að vera blandaðri. Það er ekki hægt að kvarta undan veiðinni, það var mokveiði og það liggur vel á strákunum um borð. Á þessum slóðum er mikið af loðnu. Þetta er aðallega kall sem lagstur er á botninn,“ segir Birgir Þór.

Bæði skip héldu til veiða á ný að löndun lokinni í gær.