Framundan er karfatúr hjá Bergey VE og síðan sumarstopp. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Ísfisktogarinn Bergey VE landaði fullfermi í Eyjum á mánudaginn. Heimasíðan ræddi við Ragnar Waage Pálmason skipstjóra um veiðiferðina. “Aflinn var mest ýsa en síðan var þetta einnig ufsi, karfi og þorskur. Veitt var á Pétursey að undanskildum tveimur nóttum þegar leitað var að ufsa á Reynisdýpi og þar fékkst reyndar dálítill ufsi og einnig karfi. Á Pétursey var fínasta ýsuveiði og ýsan sem fékkst var stór og góð. Það var þokkalegasta veður í túrnum og segja má að hann hafi bara gengið vel,” sagði Ragnar Waage.

Bergey mun halda til veiða á ný á föstudaginn og þá er ráðgerður stuttur karfatúr. Áformað er að landa á ný næstkomandi mánudag og síðan verður tekið sumarstopp.