Vestmannaey VE að veiðum fyrir austan land. Ljósm. Þorgeir Baldursson

Vestmannaeyjaskipin Bergur VE og Vestmannaey VE hafa fiskað fyrir austan land undanfarnar vikur og oftast landað aflanum í Neskaupstað. Í síðustu viku lönduðu skipin þó í Eyjum. Í gær komu þau síðan bæði til Neskaupstaðar og lönduðu þar fullfermi. Í veiðiferðinni fylgdust skipin að og öfluðu svipað, en aflinn var nær alfarið þorskur og ýsa. Í samtali við skipstjórana, Jón Valgeirsson á Bergi og Birgi Þór Sverrisson á Vestmannaey, kom fram að algengt væri að veiðar færu fram fyrir austan land á þessum árstíma enda lítið að hafa fyrir sunnan landið. Í síðasta túr reyndu skipin fyrir sér á Broadway fyrir vestan Eyjar en þar var afar tregt. Einungis fékkst ýsa og hún var blönduð og ekki góð. Því var strikið tekið austur fyrir land beint á Glettinganesflak. Þar var góð veiði og þar fékkst góður fiskur. Skipstjórarnir segja að þarna sé fiskurinn í síldinni og mikið líf. Undir lok túrsins var haldið á Tangaflakið og þar var hann kláraður.

Skipin héldu á ný til veiða fljótlega að löndun lokinni en skipstjórarnir höfðu orð á því að spáin væri ekki sérstaklega góð.