
Systurskipin úr Eyjum, Vestmannaey VE og Bergey VE, lönduðu bæði fullfermi í heimahöfn í gærmorgun. Slegið var á þráðinn til skipstjóranna og beðið um fréttir af veiðunum. Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey lét nokkuð vel af sér. “Við héldum til veiða í brælu en síðan var hið þokkalegasta veður í túrnum. Við byrjuðum á Pétursey og Vík og síðan var haldið í Meðallandsbugtina. Túrinn var síðan kláraður á Höfðanum. Meirihluti aflans var ýsa,” sagði Birgir Þór.
Jón Valgeirsson á Bergey var hinn brattasti. ”Þetta gekk alveg skrugguvel. Við byrjuðum á Pétursey og Vík en þar var heldur rólegt. Síðan var haldið í Meðallandsbugtina og veitt í grennd við loðnubátana. Túrinn var kláraður á Ingólfshöfðanum en þar var mjög góð veiði og á þeim slóðum var töluvert af loðnu á ferðinni. Aflinn var mest ýsa og dálítið af þorski með. Við vorum að veiðum í þokkalegasta veðri en síðan brældi,” sagði Jón.
Bæði skip héldu til veiða á ný fljótlega eftir að löndun lauk.