Línuskipið Páll Jónsson GK og ísfisktogarinn Jóhanna Gísladóttir GK að landa í Grindavík í gær. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Vísisskipin hafa landað góðum afla í heimahöfn í Grindavík að undanförnu. Ísfisktogarinn Jóhanna Gísladóttir GK landaði fullfermi í gær og þá landaði einnig línuskipið Páll Jónsson GK 120 tonnum. Línuskipið Sighvatur GK er síðan að landa tæpum 130 tonnum í dag. Heimasíðan ræddi við skipstjórana og fékk að heyra hvernig veiðiferðirnar hefðu gengið fyrir sig.

Einar Ólafur Ágústsson, skipstjóri á Jóhönnu Gísladóttur, sagði að túrinn hefði verið heldur langur eða fjórir sólarhringar að veiðum. “Við hófum veiðar vestan við Halann, síðan var verið á Halanum, Grunnhalanum, Kögurgrunni, Strandagrunni og endað á Jökultungunni. Aflinn var mest karfi og þorskur og síðan fékkst smávegis af ýsu og ufsa með. Það er ekki hægt að kvarta undan veðrinu. Í reyndinni var afbragðsveður miðað við árstíma,” sagði Einar Ólafur.

Benedikt Jónsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, var ánægður með túrinn. ”Þetta var virkilega fínn túr enda er byrjuð bullandi vertíð og allir glaðir með það. Við fengum þessi 120 tonn í fimm lögnum í Kolluálnum. Það var gott veður og allt gekk vel. Fiskurinn sem þarna fékkst var hinn fínasti; fallegur þorskur, góð ýsa og dálítið af karfa og löngu með. Ég hugsa að meðalvigt þorsksins sé 5 – 6 kg. Í sannleika sagt gekk allt eins og í sögu í túrnum enda mannskapurinn um borð hreint frábær,” sagði Benedikt.

Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson, skipstjóri á Sighvati, sagði að um hefði verið að ræða góðan túr. “Við fylltum skipið í tæpum fimm lögnum og það er nánast eins gott og það getur verið. Veitt var í Jökuldýpisbotni og fiskurinn sem fékkst var virkilega góður vertíðarfiskur. Aflinn var langmest þorskur eða um 90 tonn. Síðan var þetta ýsa og aðeins aðrar tegundir. Það var ljómandi veður nánast allan túrinn, einungis dálítill kaldi undir lokin. Þetta lítur allt saman mjög vel út,” sagði Aðalsteinn Rúnar.