Loðnuvinnsla er hafin af fullum krafti í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Ljósm. Smári Geirsson

Í gær var gleðidagur þegar þær fréttir bárust að Hafrannsóknastofnun legði til loðnuveiði upp á rúmlega 197 þúsund tonn á vertíðinni. Þegar þessi niðurstaða lá fyrir var hafist handa við að skipuleggja vertíðina og þá þurftu stjórnendur fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar í Neskaupstað að láta hendur standa fram úr ermum enda er gert ráð fyrir að öll áhersla verði lögð á vinnslu til manneldis. Fyrsta loðnan á vertíðinni barst reyndar til fiskiðjuversins þann 20. janúar þegar grænlenska skipið Polar Amaroq kom með 340 tonn og strax í gærmorgun kom síðan Barði NK með 880 tonn, en hér er um að ræða fyrstu farma þessarar vertíðar. Þá kom Polar Amaroq til hafnar í Neskaupstað í nótt með 1.200 tonn og bíður skipið löndunar. Má því ótvírætt segja að loðnuvertíð sé hafin af fullum krafti í Neskaupstað.

Heimasíðan sló á þráðinn til Odds Einarssonar yfirverkstjóra í fiskiðjuverinu og spurði hann hvernig undirbúningur vertíðarinnar hefði gengið. “Þegar fréttir bárust af ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar í gær fór allt svo sannarlega á fulla ferð. Það var líka gaman að sjá viðbrögð fólks. Það brostu allir út að eyrum og það er eins og jólin séu komin aftur. Við gerum ráð fyrir að vera á fullri keyrslu út febrúar og hér verður unnið á tvískiptum vöktum allan sólarhringinn. Starfsmenn fá þó akveðin hvíldarfrí á meðan törnin stendur yfir. Auðvitað þurfti að ræsa mannskapinn út þegar niðurstaða Hafró lá fyrir í gær en það voru allir klárir, fólk beið eftir kallinu og stór hluti af mannskapnum, sem ekki var staddur í Neskaupstað, er mættur nú þegar. Það eru 17 starfsmenn á hvorri vakt auk verkstjóra, iðnaðarmanna og starfsmanna í gæðaeftirliti. Það er ótrúlega bjart yfir öllum starfsmönnum og reyndar finnur maður bjartsýnina í öllu samfélaginu. Það má með sanni segja að loðnan er áhrifaríkur fiskur,” sagði Oddur.