
Börkur NK kom með 650 tonn af makríl til Neskaupstaðar í fyrrinótt og hófst þá strax vinnsla á aflanum í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Heimasíðan ræddi við Hjörvar Hjálmarsson skipstjóra og spurði hann um gang veiðanna. “Aflinn sem við komum með er að hluta til okkar eigin en þetta er einnig afli frá Beiti NK og Margréti EA. Við vorum að veiðum í Smugunni eins og áður. Það mætti alveg vera meira af makrílnum og hann hegðar sér í reyndinni eins og hann hefur alltaf gert; mikið á ferðinni og fljótlega eftir að hann finnst hverfur hann snögglega. Það koma annað slagið veiðiglennur en mestur tíminn fer í að leita. Það þarf svo sannarlega að hafa fyrir þessu og það má alveg segja að það sé þolinmæðisverk að veiða makrílinn. Við erum auðvitað bæði þolinmóðir og geðgóðir og hömumst í þessu áfram. Þetta hefur bara sinn gang. Hitt er annað mál að fiskurinn sem við flytjum að landi er virkilega flottur. Þetta er fiskur sem er um 500 grömm, bæði stór og gullfallegur,” sagði Hjörvar.
Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuversins, tekur undir með skipstjóranum og segir að makrílinn sé úrvalshráefni til vinnslu. Segir hann að langmest af fiskinum sé heilfrystur en hluti aflans sé hausaður. Þá upplýsti Geir Sigurpáll að Beitir NK væri væntanlegur úr Smugunni á morgun með 650 tonn.