
Frystitogarinn Blængur NK kom til löndunar í Neskaupstað í morgun. Aflinn í veiðiferðinni var rúmlega 730 tonn upp úr sjó og eru verðmæti hans tæplega 570 milljónir króna. Heimasíðan sló á þráðinn til Sigurðar Harðar Kristjánssonar skipstjóra og spurði hvernig túrinn hefði gengið. ”Það er ekki hægt að segja annað en að hann hafi gengið vel. Við byrjuðum á grunnunum fyrir austan land og þá var meðal annars lögð áhersla á ýsuveiði. Síðan var haldið á Vestfjarðamið og lögð áhersla á ufsa. Fyrstu dagana fyrir vestan var veiðin heldur treg en það rættist úr því þegar á leið. Ég held að við getum ekki kvartað eftir þennan túr,” sagði Sigurður Hörður.
Gert er ráð fyrir að Blængur haldi til veiða á ný annað kvöld.