Sighvatur GK kemur til löndunar. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa landað mjög góðum afla í heimahöfn í Grindavík síðustu daga. Páll Jónsson landaði 135 tonnum á mánudag og í dag er verið að landa 122 tonnum úr Sighvati. Heimasíðan ræddi við skipstjórana en hjá þeim báðum kom fram að ánægja ríkti með aflabrögðin.

Jónas Ingi Sigurðsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, sagði að veiðiferðin hefði gengið vel . “Við byrjuðum á að fara á Reykjaneshrygg til að ná í löngu, karfa og keilu. Þar tókum við þrjár lagnir og fengum góðan fisk. Um 30% af aflanum þar var þorskur. Síðan var tekin ein lögn á Hólakanti og endað í Jökuldýpinu. Aflinn í túrnum var 135 tonn og var þorskur um 40% en síðan var þetta ufsi, langa, keila, karfi og ýsa. Það verður ekki annað sagt en túrinn hafi verið góður og það var gott veður nema við fengum smá kaldaskít síðustu tvo dagana,” sagði Jónas Ingi.

Óli Björn Björgvinsson, skipstjóri á Sighvati, var einnig mjög sáttur við gang mála. ”Þetta gekk í reyndinni bara vel þó veður væri að stríða okkur. Við byrjuðum að taka eina lögn á Sneiðinni og síðan var ein tekin á Stórahrauni við Surtinn. Þá færðum við okkur vegna veðurs í fjöruna við Þorlákshöfn og þar tókum við tvær lagnir og fengum helst þorsk. Næst lá leiðin í Selvoginn og þar var lagt í bongóblíðu. Síðasta lögnin var uppi á drullunni við Krísuvíkurbjargið en þá var komið hundleiðinlegt veður. Aflinn var 122 tonn og þetta var fínasta blanda. Mest var af þorski en síðan var þetta helst langa, ýsa og keila,” sagði Óli Björn.