
Barði NK kom til heimahafnar í Neskaupstað í nótt með 1.255 tonn af síld. Löndun hófst þegar og er síldin ýmist heilfryst eða flökuð í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Heimasíðan hafði samband við Theodór Haraldsson skipstjóra og spurði hvernig hefði gengið að ná í síldina. “Það þurfti dálítið að hafa fyrir því að ná í síldina að þessu sinni. Við vorum allan tímann að veiðum utarlega í Kolluálnum og það þurfti talsvert að leita á milli hola. Við tókum sjö hol í túrnum og aflinn í þeim var frá 100 tonnum og upp í 310 tonn. Það var norðaustan kaldi allan tímann á meðan veitt var en á leiðinni austur var rennisléttur sjór. Það er engin ástæða til að kvarta og þetta er ósköp hefðbundin veiði. Síldin sem fæst er líka ágæt eða 290 – 320 grömm að meðalstærð. Ég geri ráð fyrir að það taki um tvo sólarhringa að vinna aflann og síðan reikna ég með að halda strax til veiða á ný á sömu slóðum,” sagði Theodór.