
Ísfisktogarinn Gullver NS kom til heimahafnar á Seyðisfirði á laugardaginn að aflokinni fimm daga veiðiferð. Landað verður í dag en aflinn er um 120 tonn, nánast eingöngu þorskur og ýsa. Hjálmar Ólafur Bjarnason skipstjóri segir að þetta hafi verið þægilegur túr. “Fiskurinn sem við fengum er þokkalegasti vinnslufiskur en við vorum að veiðum á Barðinu og við Litla dýpi á Breiðdalsgrunni. Túrinn gekk bara vel fyrir sig. Það eina sem skyggði á var árangurslítil leit að ufsa. Það er sérstakt að nú skuli stór hluti flotans vera að veiðum fyrir austan land en á þessum tíma hafa skipin oftast verið að veiðum fyrir vestan land. Á sama tíma í fyrra var aðgæsluveiði vestur af landinu en það er ekki svo í ár. Það má alveg segja að þessi túr hafi verið hinn ágætasti bæði hvað varðar veiði og veður. Gullver mun halda til veiða á ný síðdegis í dag,” sagði Hjálmar Ólafur.