
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum kom upp eldur í vélarrúmi Barða NK norður af Færeyjum sl. föstudag. Áhöfninni tókst að kæfa eldinn á skömmum tíma en ljóst er að eldsvoðinn olli verulegum skemmdum. Barða rak stjórnlaust í rúmar þrjár klukkustundir eftir að eldurinn kom upp en þá kom færeyskt varðskip á vettvang og dró hann inn til Þórhafnar en þar hafði Barði verið í vélarupptekt. Einungis fimm menn voru um borð í Barða þegar kviknaði í enda var hlutverk þeirra einungis að sigla skipinu heim að lokinni vélarupptektinni. Reyndar hafði verið farið í prufusiglingu áður en lagt var af stað í heimferðina og þá reyndist allt vera í góðu lagi.
Theodór Elvar Haraldsso, skipstjóri á Barða, sagði að þarna hefði skírt komið í ljós hve þjálfun áhafnar á sviði öryggismála væri mikilvæg. “Við í áhöfninni höfum lagt áherslu á öryggismál og æfingar um borð hafa verið framkvæmdar samviskusamlega. Þessar æfingar gerðu það að verkum að allir í áhöfninni vissu nákvæmlega hvað þyrfti að gera við þessar aðstæður. Þarna skipti semsagt þjálfun áhafnarinnar sköpum því ef eldurinn hefði logað lengur í vélarrúminu hefðum við misst öll tök,” sagði Theodór.
Þeir Grétar Örn Sigfinnsson rekstrarstjóri útgerðar Síldarvinnslunnar og Páll Freysteinsson öryggisstjóri fyrirtækisins héldu til Færeyja um helgina og þangað fóru einnig fulltrúar tryggingafélagsins sem Barði er tryggður hjá og fulltrúar frá Rannsóknanefnd sjóslysa. Að sögn Páls eru skemmdir í vélarrúmi Barða verulegar og ljóst að viðbrögð áhafnar hafi komið í veg fyrir að mjög illa færi.
Hér skal tekið fram að áhafnir Síldarvinnsluskipanna nota svonefnt Öldu öryggis – og þjálfunarkerfi fyrir fiskiskip. Gísli Níls Einarsson öryggissérfræðingur og framkvæmdastjóri Öldu segist vera stoltur af því hvernig áhöfn Barða brást við eldsvoðanum. Hann segir að fyrir liggi að áhöfn Barða hafi haldið æfingar reglubundið samkvæmt kerfinu og þeir hafi í reyndinni nýlega verið búnir að æfa viðbrögð við sambærilegum aðstæðum og komu upp í skipinu á föstudaginn. “Ég er virkilega stoltur af þeim Barðamönnum og hvernig þeir brugðust við þegar eldurinn kom upp, Þarna var það þekking þeirra og þjálfun sem skipti sköpum,” sagði Gísli.