
Vísistogarinn Jóhanna Gísladóttir GK og Vestmannaeyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu allir í gær. Jóhanna landaði fullfermi á Djúpavogi en Vestmannaeyjaskipin lönduðu í Neskaupstað að lokinni stuttri veiðiferð. Einar Ólafur Ágústsson, skipstjóri á Jóhönnu, sagði að þokkalega hefði aflast í leiðinda suðaustan kalda. “Við vorum að veiðum á Digranesflaki og við Tólftonnapyttinn. Við fengum mestmegnis þorsk en reyndum að fá ýsu með takmörkuðum árangri,” sagði Einar Ólafur.
Vestmannaeyjaskipin komu inn til löndunar fyrst og fremst vegna áhafnaskipta. Vestmannaey landaði 30 tonnum eftir einn og hálfan sólarhring að veiðum og var aflinn þorskur og ýsa. Egill Guðni Guðnason skipstjóri sagði að veitt hefði verið á Glettinganesflaki. Jón Valgeirsson skipstjóri á Bergey upplýsti að aflinn hefði verið 43 tonn og rétt eins og hjá hinum skipunum var um þorsk og ýsu að ræða. Bergey tók eitt hol á Glettingi en síðan var haldið á Digranesgrunn og fékkst megnið af aflanum þar.