
Línuskipið Páll Jónsson GK landaði í Grindavík í gær og Sighvatur GK landaði þar í morgun. Afli hvors skips var um 85 tonn og meginhluti aflans var keila og langa. Andrés Óskarsson, sem annast aflastýringu hjá Vísi, segir að auk keilu og löngu hafi Páll Jónsson verið með dálítið af karfa, þorski og keilubróður, en Páll hafi verið að veiðum úti á Fjöllum sem eru suðvestur af Reykjanesinu.
Óli Björn Björgvinsson, skipstjóri á Sighvati, var sáttur við túrinn. ”Aflinn er langmest keila og langa en við erum líka með um 10 tonn af aldamótakarfa. Við hófum veiðar í kantinum sunnan við Melsekk og tókum þar þrjár lagnir. Síðan voru teknar tvær lagnir á Litla Dímon og á Litlabanka og þar fékkst risastór aldamótakarfi. Við enduðum síðan í gær á Þjóðverjahólum. Túrinn gekk vel og það var bongóblíða mest allan tímann,” sagði Óli Björn.