Mynd tekin af Hafnarbraut 6 á laugardaginn. Þriðja hæðin risin. Ljósm. Guðmundur Helgi Sigfússon

Nú er þriðja hæðin risin á húsinu að Hafnarbraut 6 í Neskaupstað þar sem skrifstofur Síldarvinnslunnar eru til húsa. Þriðja hæðin er byggð úr krosslímdum timbureiningum (CLT) og eru allar einingar komnar á sinn stað þannig að vel sést hvernig húsið mun líta út að framkvæmdum loknum. Skrifstofur Síldarvinnslunnar verða á annarri og þriðju hæð hússins en skrifstofur og verslun SÚN eru á neðstu hæðinni og mun neðsta hæðin verða í fullri notkun allan framkvæmdatímann.

Aðalhönnuður umræddra framkvæmda er Snidda Arkitektastofa og sér stofan um alla hönnunarstjórn. Aðrir hönnuðir eru eftirtaldir: Grafít (innanhússhönnun), Verkráð (burðarþol), Varmboði (lagnir og loftræsting), Umsjá – verkfræðistofa (raflagnir og lýsing) og Element (hönnun og útvegun CTL – eininga).

Gluggar munu verða settir í þriðju hæðina í ágústmánuði og í framhaldi af því mun innanhússvinna hefjast.