Vestmannaeyjaskipin Bergey VE og Vestmannaey VE í höfn í Neskaupstað. Ljósm. Smári Geirsson

Það er ekki oft sem það gerist að þrír togarar komi til löndunar í Neskaupstað á sama deginum en það gerist í dag. Ísfisktogararnir Birtingur NK, Bergey VE og Vestmannaey VE landa allir í dag auk þess sem síld er landað af fullum krafti og má því með sanni segja að það sé fjör á bryggjunni.

Löndun hófst úr Birtingi klukkan sjö í morgun og er skipið með rúmlega 80 tonn. Aflinn er mestmegnis þorskur og karfi.

Í kjölfarið verður landað úr Vestmannaeyjaskipunum en þau eru bæði að koma inn að lokinni mjög stuttri veiðiferð og má nefna að Vestmannaey landaði síðast á mánudag. Arnar Richardsson, rekstrarstjóri skipanna, sagði að afli Bergeyjar væri rúmlega 60 tonn og afli Vestmannaeyjar rúmlega 30 tonn. Uppistaða aflans hjá báðum skipum er þorskur og ýsa.

Vegna brælu munu skipin væntanlega ekki halda til veiða á ný fyrr en á laugardag.