
Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson
Línuskip Vísis hafa fiskað vel að undanförnu. Páll Jónsson GK landaði í heimahöfn í Grindavík á mánudaginn og Sighvatur GK landar á Djúpavogi í dag. Páll Jónsson var í þorsktúr austur af landinu en Sighvatur í kokteiltúr úti fyrir austanverðri suðurströndinni. Heimasíðan ræddi við skipstjórana og spurði þá hvernig veiðarnar hefðu gengið.
Benedikt Jónsson skipstjóri á Páli Jónssyni var mjög ánægður með túrinn. ”Í túrnum lögðum við fjórar lagnir í Bakkaflóadýpinu. Aflinn var 128 tonn og þetta var nánast allt þorskur. Þetta var gríðarlega fallegur fiskur sem þarna fékkst og var meðalvigtin 4,6 kg. Það var gott veður allan túrinn og það eina sem skyggði á voru löng stím. Það tók okkur 37 – 38 tíma að sigla til löndunar í Grindavík. Í næsta túr verðum við að blanda aflann. Það gengur ekki að veiða einungis þorsk, menn verða að taka tillit til kvótans sem menn hafa til ráðstöfunar. Að loknum svona túr eru allir brattir um borð í Páli Jónssyni. Það kvartar ekki nokkur maður hér,” sagði Benedikt.
Óli Björn Björgvinsson skipstjóri á Sighvati var einnig hinn hressasti. ”Við erum að landa 84 tonnum á Djúpavogi í dag og þetta var kokteiltúr en túrinn á undan var þorsktúr. Í aflanum var mest af löngu en síðan var þetta helst keila, ýsa, langa og ufsi. Einu sinni voru svona túrar kallaðir skraptúrar en menn eru nánast hættir því, það er svo hátt verð á öllum fiski að það er varla rétt að kenna þá við skrap. Í túrnum voru teknar fjórar og hálf lögn í heildina og veitt í Meðallandsbugt, á Öræfagrunni, í Sláturhúsinu og undir lokin á Stokksnesgrunni. Það var fínasta veður í túrnum að undanskildum síðasta eina og hálfa sólarhringnum en þá brældi. Við höldum til veiða á ný í dag fljótlega eftir að löndun lýkur og næsti túr hjá okkur verður þorsktúr,” sagði Óli Björn.