Landað úr línuskipinu Páli Jónssyni GK í Grindavík. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa bæði landað góðum afla í heimahöfn í Grindavík í vikunni. Páll Jónsson landaði 120 tonnum á mánudag og Sighvatur er að landa 97 tonnum í dag. Heimasíðan ræddi við skipstjórana og spurði um gang veiðanna. Jónas Ingi Sigurðsson á Páli Jónssyni var ánægður með veiðina. ”Aflinn fékkst í fimm lögnum. Þrjár fyrstu lagnirnar voru í Jökuldýpinu, síðan kom ein suður á Reykjaneshrygg og loks ein á Eldeyjarbankanum. Það var leiðindakaldi megnið af túrnum. Loðnan var komin norður fyrir Reykjanesið og þá fer að draga úr veiði á línuna á þessum miðum,” sagði Jónas Ingi.

Óli Björn Björgvinsson á Sighvati sagði að loðnan sem komin væri á miðin hefði töluverð áhrif á veiðina. ”Tilkoma loðnunnar á miðin sem við vorum á dregur úr veiði. Við byrjuðum með tveimur lögnum á Fjöllunum, síðan var lagt þrisvar á Hafnarleirnum og tvisvar norður í Faxaflóanum. Loks var endað með einni lögn á Búrbankanum. Engin þessara lagna var þó full. Veðrið var ekkert sérstakt. Í byrjun túrsins var bræla, síðan kom gott veður um tíma en þá gekk hann aftur í leiðindakalda og loks skall á skítabræla. Reynt var að blanda aflann og var 45% af honum þorskur en síðan var þetta helst ýsa, langa og keila,” sagði Óli Björn.

Páll Jónsson hélt á ný til veiða á mánudagskvöld og Sighvatur lætur úr höfn í kvöld.