Birtingur NK heldur til veiða frá Grindavík. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Það eru annir í Grindavíkurhöfn um þessar mundir. Bátar koma að landi með góðan afla og þegar er hafist handa við að landa úr þeim. Ísfisktogarinn Birtingur NK kom til Grindavíkur í gær og í morgun var verið að landa úr línuskipinu Sighvati GK. Hjá Vísi eru svo sannarlega næg verkefni og unnið hörðum höndum bæði í frystihúsi og salthúsi. Heimasíðan ræddi stuttlega við skipstjóra Birtings og Sighvats. Einar Ólafur Ágústsson, skipstjóri á Birtingi, sagði að afli þeirra hefði verið 114 tonn og allvíða hefði verið veitt. ”Aflinn var mest þorskur, ýsa og ufsi. Við byrjuðum við Eldeyna en færðum okkur þaðan á Síðugrunn, síðan á Höfðann og loks í Berufjarðarálinn. Það veiddist mjög vel á Höfðanum en í Berufjarðarálinn var ætlunin að sækja ufsa sem gekk ekkert sérstaklega vel. Í túrnum var fínasta veður,” sagði Einar Ólafur.

Afli Sighvats var 75 tonn sem fékkst í fimm lögnum. Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson skipstjóri segir að aflinn hafi verið mjög blandaður. ”Þetta var langa, ýsa, keila og þorskur. Við lögðum fjórum sinnum á Síðugrunni en síðasta lögnin var tekin suður af Surti. Þetta var heldur tíðindalítill túr í blíðuveðri,” sagði Aðalsteinn Rúnar.

Birtingur hélt á ný til veiða í gærkvöldi og Sighvatur heldur til veiða í kvöld.