
Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson
Ísfisktogararnir Jóhanna Gísladóttir GK og Gullver NS hafa báðir landað í heimahöfnum nú í byrjun vikunnar. Jóhanna Gísladóttir landaði fullfermi í Grindavík í gær og Gullver landaði tæplega 90 tonnum á Seyðisfirði í morgun. Heimasíðan ræddi stuttlega við skipstjórana og innti þá frétta af veiðiferðunum. Einar Ólafur Ágústsson, skipstjóri á Jóhönnu Gísladóttur, sagði að veitt hefði verið á grunnslóð út af Garðskaga og hefði veiðin verið heldur róleg. “Þetta hafðist allt með þolinmæðinni. Aflinn var mest þorskur og síðan ýsa. Það gekk í reyndinni allt sinn vanagang í þessum túr,” sagði Einar Ólafur.
Hjálmar Ólafur Bjarnason, skipstjóri á Gullver, sagði að helst hefði verið veitt í Berufjarðarálnum í veiðiferðinni. ”Það var lögð áhersla á ýsuveiði og ýsan veiðist nær eingöngu í björtu um þessar mundir. Við vorum fjóra daga að veiðum og erum þokkalega sáttir við árangurinn. Það var hið fínasta veður á meðan veitt var en á landleiðinni breyttist veðrið og þá var sannkölluð haugabræla,” sagði Hjálmar Ólafur.
Jóhanna Gísladóttir hélt til veiða á ný síðdegis á mánudag og Gullver mun láta úr höfn og halda á miðin í kvöld.