
Ísfisktogarinn Jóhanna Gísladóttir GK landaði í Grindavík í gær að lokinni vel heppnaðri veiðiferð. Skipið var með fullfermi og fékkst aflinn út af Vestfjörðum; á Kögurgrunni og á Djúpendanum. Einar Ólafur Ágústsson skipstjóri segir að menn séu sáttir við veiðiferðina. “Þetta gekk bara vel enda gott veður allan tímann. Aflinn var mest þorskur en dálítið af ýsu, karfa og ufsa með,” sagði Einar Ólafur.
Jóhanna Gísladóttir lét úr höfn fljótlega eftir löndun og var stefnan tekin á Kolluálinn.
Gullver NS kom til heimahafnar á Seyðisfirði í gær og var landað úr honum í dag. Hjálmar Ólafur Bjarnason skipstjóri sagði að um þriggja daga veiðiferð hefði verið að ræða. ”Það var gott veður framan af en síðan byrjaði að blása hressilega á sunnudagskvöld og þá var ekki um annað að ræða fyrir okkur en að halda til hafnar. Aflinn var 57 tonn, nær eingöngu þorskur. Við hófum veiðar á Digranesflakinu og enduðum á Brettingsstöðum,” sagði Hjálmar Ólafur.