Vestmannaey VE heldur til veiða. Ljósm. Björn Steinbekk

Ísfisktogarinn Gullver NS landaði á Seyðisfirði í gær og Vestmannaeyjaskipin Vestmannaey VE og Bergey VE eru að landa í Þorlákshöfn í dag. Heimasíðan ræddi stuttlega við skipstjórana og fékk upplýsingar um aflabrögð og veður. Þórhallur Jónsson, skipstjóri á Gullver, sagði að túrinn hefði verið heldur þreytandi vegna veðurfarsins. “Við byrjuðum á að veiða karfa á Melsekk í sæmilegu veðri. Síðan var haldið austur eftir og það var heldur lítið að hafa. Við enduðum á Glettinganesflakinu og þá var komið snælduvitlaust veður þannig að það var ekkert annað að gera en að fara í land. Aflinn var 52 tonn, mest karfi og síðan ýsa og þorskur. Haldið var til veiða á ný fljótlega eftir að löndun lauk. Líklega verður veitt á miðum úti fyrir suðausturlandinu en veðurútlit er ekki mjög gott, sagði Þórhallur þegar rætt var við hann sídegis í gær.

Skipstjórarnir á Vestmannaey og Bergey létu ágætlega af veiðinni en afli beggja var mest þorskur, rauðspretta og ufsi. Bæði skip voru að veiðum á Planinu vestan við Eyjar. Birgir Þór Sverrisson skipstjóri á Vestmannaey lét ekki vel af veðrinu. ”Það var drulluveður og haugasjór en það gekk hins vegar ágætlega að veiða,” sagði Birgir Þór.

Jón Valgeirsson skipstjóri á Bergey var einnig ánægður með aflabrögðin. ”Þetta var stuttur túr eða einungis tveir sólarhringar höfn í höfn og aflinn var vel blandaður. Ég held menn hljóti að vera ágætlega sáttir við þessa veiðiferð,” sagði Jón.

Bæði Vestmannaey og Bergey halda á ný til veiða í kvöld.