Jóhanna Gísladóttir GK að landa í Grindavík. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Ísfisktogarinn Jóhanna Gísladóttir GK landaði fullfermi í Hafnarfirði á föstudaginn fyrir viku og er síðan einnig að landa fullfermi í Grindavík í dag. Skipstjórli í fyrri túrnum var Smári Rúnar Hjálmtýsson en Einar Ólafur Ágústsson var skipstjóri í þeim síðari. Heimasíðan ræddi stuttlega við þá. Smári Rúnar sagði að fyrri túrinn hefði gengið vel. “Við byrjuðum úti á Melsekk og fengum þar strax ein 10 tonn af karfa. Síðan færðum við okkur út í Víkurál og þar var góð veiði, þorskur og ýsa. Veður var þokkalegt á meðan við vorum úti en það var ekki haldið á ný til veiða frá Hafnarfirði fyrr en á sunnudag vegna brælu,” sagði Smári Rúnar.

Einar Ólafur sagði að seinni túrinn hefði gengið ágætlega. “Við byrjuðum á Síðugrunni og ætluðum að athuga með ýsu en þar fékkst lítið. Við færðum okkur á Ingólfshöfðann og þar gekk vel að fiska. Aflinn var nánast til helminga þorkur og ýsa og síðan ýmislegt með” sagði Einar Ólafur.